28.10.1985
Neðri deild: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (191)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Ingvar Gíslason):
Hér er bréf sem borist hefur til forseta Nd. og þannig hljóðar:
„Reykjavík, 28. okt. 1985. Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður landskjörinna þm. Bandalags jafnaðarmanna, Kristófer Már Kristinsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Guðmundur Einarsson,
4. landsk. þm."
Kristófer Már Kristinsson hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til þingstarfa.