18.02.1986
Sameinað þing: 49. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2609 í B-deild Alþingistíðinda. (2213)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það hefur verið farið fram á að utandagskrárumræður fari fram nú um búmark í mjólkurframleiðslu. Það hefur verið orðið við þessari ósk og fer umræðan nú þegar fram skv. 1. mgr. 32. gr. þingskapa. En hv. 3. þm. Norðurl. v. tekur nú til máls um þingsköp.