29.10.1985
Sameinað þing: 9. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (228)

11. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu

Flm. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Herra forseti. Á þskj. 11 hef ég ásamt hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur og Kristínu Halldórsdóttur borið fram till. til þál. um að meta heimilisstörf til starfsreynslu.

Tillögugreinin hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela fjmrh. að sjá til þess að í kjarasamningum ríkisins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja verði starfsreynsla við ólaunuð heimilisstörf, hafi þau verið aðalstarf starfsmanna, framvegis metin á sama hátt og starfsreynsla hjá opinberum aðilum við ákvörðun um aldurshækkanir starfsmanna. Jafnframt verði tryggt að þeir starfsmenn sem nú falla undir kjarasamning ríkisins og BSRB njóti þessa réttar sé hann þeim ekki þegar tryggður.“

Eins og segir í grg. með till. miðar hún að því „að hið opinbera sem atvinnurekandi meti starfsreynslu við heimilis- og umönnunarstörf sem unnin eru launalaust á heimilum landsins. Till. felur í sér að þeir sem hafa haft ólaunuð heimilisstörf að aðalstarfi njóti sama réttar til starfsaldurshækkana og þeir sem fengið hafa starfsreynslu sína við launuð störf hjá hinu opinbera ef þeir ráðast til launaðra starfa hjá ríki eða sveitarfélögum. Till. tekur einnig til þeirra opinberra starfsmanna sem rétt ættu til starfsaldurshækkana samkvæmt till. en hafa ekki þegar notið fullra starfsaldurshækkana.

Í aðalkjarasamningi ríkisins og BSRB eru nú ákvæði um starfsaldurshækkanir á þann veg að til fulls starfsaldurs teljist sá tími sem starfsmaður hefur tekið laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna og unnið hjá ríki, sveitarfélögum og stofnunum sem styrktar eru af almannafé. Það er einnig ljóst af samningnum að ráðist húsmóðir án starfsreynslu til starfa hjá hinu opinbera tekur það hana fimm ár að ná 3. launaþrepi þess launaflokks sem hún tekur laun samkvæmt nema hún sé 32 ára eða eldri þegar hún hefur störf hjá hinu opinbera. Till. miðar að því að breyta þessu fyrirkomulagi þannig að hið opinbera meti jafngilda starfsreynslu við ólaunuð heimilisstörf og þá reynslu sem störf á vegum hins opinbera veita til starfsaldurshækkana. Í till. er því gert ráð fyrir að hið opinbera viðurkenni starfsreynslu við heimilisstörf án tillits til eðlis þess starfs sem unnið er hjá hinu opinbera. Það skal einnig tekið fram að starfsmaður telst hafa heimilisstörf sem aðalstarf á meðan hún eða hann gegnir ekki hálfu starfi eða meira úti á vinnumarkaðnum.

Í heimilisstörfum felst margvísleg reynsla sem ekki nýtist síður við launuð störf en almenn reynsla fengin á vinnumarkaðnum. Má þar nefna þætti eins og frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og meðferð fjármuna, en það eru þeir þættir í launuðum störfum sem einna hæst eru metnir til launa á vinnumarkaðnum. Í annan stað sæta þeir, sem inna af hendi ólaunuð heimilisstörf, stórlega skertum ævitekjum miðað við þá sem geta óhindrað gegnt launuðum störfum alla starfsævi sína. Í þessu er m.a. fólgin efnahagsleg mismunun kynjanna, en í langflestum tilvikum eru ólaunuð heimilisstörf unnin af konum. Það kemur þó vitaskuld ekki í veg fyrir að karlar, sem sinna ólaunuðum heimilisstörfum sem aðalstarfi, njóti þeirra réttinda sem till. kveður á um.

Ekki liggja fyrir neinar tölur sem sýna fram á hversu þjóðhagslega mikilvæg heimilisstörf eru. Fæstum blandast þó hugur um að heimilisstörf eru ekki síður mikilvæg en önnur störf sem unnin eru í þjóðfélaginu. Till. telst því réttlætismál og gefur tilefni til að sýna í verki, þó í litlu sé, að ríkið meti í raun einhvers þjóðhagslegt mikilvægi ólaunaðs vinnuframlags kvenna.“

Hér lýkur grg. með till.

Virðulegi forseti. Kjaramál opinberra starfsmanna hafa verið ofarlega á baugi á s.l. ári og munu sennilega verða það á næstunni þar sem samningar þeirra eru lausir um áramótin. En í þeim samningum sem BSRB og ríkið gerðu á árinu hefur því miður engin leiðrétting náðst á því kynbundna launamisrétti sem viðgengst í þessum hópi launafólks rétt eins og annars staðar á vinnumarkaðnum.

Ef við skoðum aðeins skiptingu kvenna og karla í launaflokka hjá hinu opinbera voru í janúar 1983 rúmlega 2400 konur og rúmlega 1500 karlar í Starfsmannafélagi ríkisstofnana. Þar af voru um 90% kvennanna í 15. launaflokki eða þar fyrir neðan á meðan u.þ.b. 45% karlanna voru í þessum launaflokkum eða þar fyrir neðan. Þessar tölur eru framreiknaðar miðað við heil stöðugildi. Í janúar 1984 voru 1451 kona og 845 karlar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, þar af voru 1227 konur eða 84% þeirra í 16. launaflokki eða neðar á meðan 488 karlar eða 57% þeirra voru í þessum launaflokkum. Konurnar eru sem sagt í miklum meiri hluta í lægstu launaflokkunum og er þessi kynbundna skipting í launaflokka vísast ekki eðlileg miðað við vinnuframlag, starfsreynslu og gildi starfa þeirra sem í hlut eiga.

En þótt skiptingin sé ekki eðlileg á hún sér skýringar. Ég vil hér aðeins nefna tvær meginskýringar þó fleiri megi tína til.

Í fyrsta lagi eru þau störf sem konurnar inna af hendi, svo sem fóstrustörf, matseld eða ræstingar svo dæmi séu tekin, metin til lægri launa að jafnaði en störf karlanna og því skipa konurnar lægri launaflokkana. Þetta er spurning um starfsmat og í þessu tilfelli sem svo mörgum öðrum er um að ræða vanmat á þeim störfum sem konurnar hafa með höndum. Á starfsendurmati er brýn nauðsyn, eins og oft hefur verið bent á, og sú þáltill. sem ég er hér að mæla fyrir tekur til starfsendurmats að því leytinu til að í henni er lagt til að heimilisstörf verði metin sem störf og að þeir sem þau inna af hendi fái þau metin sem starfsreynslu ef viðkomandi ræður sig til starfa hjá hinu opinbera.

Önnur meginskýring þess að konur skipa í miklum meiri hluta lægstu launaflokka hjá hinu opinbera jafnt sem annars staðar er sú að starfsævi kvenna úti á vinnumarkaðnum er að jafnaði styttri en karla þar sem þær eru venjulega bundnar börnum og heimilishaldi einhvern hluta ævinnar og geta ekki sinnt störfum úti á vinnumarkaðnum í jafnmiklum mæli og karlar. Af þessu leiðir að starfsaldur þeirra á vinnumarkaðnum er styttri en karla og launin einnig því lægri þess vegna. Jafnframt þýðir þetta að konur geta síður beitt sér úti á vinnumarkaðnum og unnið sig upp í launum þótt hugur standi til.

Á þessum þætti málsins tekur sú þáltill., sem hér á ferðinni, beint þar sem í henni felst að sá tími ævinnar sem konur verja fyrst og fremst til heimilisstarfa nýtist þeim til starfaldurshækkana ef þær ráða sig til starfa hjá ríki og bæ að heimilisstarfatímanum liðnum. Starfsævi þeirra í heild er þá metin en ekki aðeins sá hluti hennar sem þær verja í launuðum störfum úti á vinnumarkaðnum.

Till. er því í rauninni tvíþætt. Annars vegar felur hún í sér að heimilisstörf séu metin eins og hvert annað starf, hins vegar að starfsævi þeirra sem um ræðir sé metin í heild en ekki aðeins hluti hennar eins og nú er.

Það skal tekið fram að þótt konur séu í miklum meiri hluta þeirra sem stunda heimilisstörf að aðalstarfi ná þau réttindi, sem till. kveður á um, vitaskuld einnig til þeirra karla sem það gera. Það skal einnig tekið fram að þó réttindi þau, sem till. kveður á um, nái aðeins til opinberra starfsmanna af þeirri einföldu ástæðu að ríkið er viðsemjandi þeirra en ekki annars launafólks, þá er það von flm. að samþykkt þessarar tillögu komi einnig til með að koma öðru launafólki til góða, að önnur samtök launafólks geti á grundvelli hennar samið um sambærileg réttindi sér til handa.

Þess ber einnig að geta að það fyrirkomulag við starfsmat sem till. kveður á um hefur sums staðar verið tekið upp að einhverju leyti. Það mun hafa verið gert hjá Akureyrarbæ á síðasta ári. Fyrir rúmu ári bókaði bæjarstjórn Akureyrar viljayfirlýsingu í þessa veru og mun hún hafa komið til framkvæmda á þessu ári. Í gildandi kjarasamningum Kópavogskaupstaðar og Starfsmannafélags Kópavogskaupstaðar er einnig ákvæði sem kveður á um að heimilisstörf skuli að hluta metin til starfsreynslu hjá Kópavogskaupstað. Og ég vil nefna þriðja dæmið. Það er sérkjarasamningur Starfsmannafélags ríkisstofnana sem var undirritaður 8. desember í fyrra. Þar var samþykkt að meta til starfsaldurs öll almenn störf, þ.m.t. heimilisstörf, þegar verið er að raða í launaflokka hjá þessu starfsmannafélagi, þ.e. Starfsmannafélagi ríkisstofnana.

Á þessum stöðum, sem ég hef hér nefnt, er kominn vísir að þeirri tilhögun við starfsmat sem till. kveður á um, nema hvað þarna er alls staðar gengið skemmra í þá átt að meta heimilisstörf til starfsreynslu en gert er ráð fyrir í till. Fleiri dæmi um samningsákvæði í þessa veru eru fyrir hendi bæði hjá opinberum starfsmönnum og hjá öðru launafólki og því miðar þessi þáltill. einnig að því að ákvæði þessi verði samræmd hvað opinbera starfsmenn varðar og færð til sanngjarnara horfs og að allir hópar opinberra starfsmanna njóti þessara réttinda en ekki aðeins sumir eins og nú er.

Virðulegi forseti. Fæstum blandast hugur um mikilvægi heimilis- og uppeldisstarfa og gildi þeirra fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga og fyrir þjóðarbúið í heild. Hér er um störf að ræða sem sennilega verða seint að fullu metin til fjár eins og menn eru nú sem betur fer orðnir óþreyttir að benda á í seinni tíð þótt lítið hafi gengið eftir í þessum málum. Þessi till. kveður á um að meta skuli heimilisstörf til jafns við önnur störf, hver svo sem þau eru, og er þetta að mínu viti ekki annað en lágmarksmat á heimilisstörfum. Því má ekki heldur gleyma að heimavinnandi spara ríki og sveitarfélögum ótæpilega fjármuni á ári hverju og einnig þess vegna er það réttlætismál að þessir sömu aðilar meti þessi störf einhvers þegar heimavinnandi ráða sig til starfa hjá ríki og bæ. Að öllu samanlögðu er hér um réttlætismál að ræða, réttlæti í garð þeirra sem eru meðal þeirra réttindaminnstu í þessu þjóðfélagi, og samþykkt þessarar till. gefur tilefni til að sýna í verki, þótt í litlu sé, að hæstv. Alþingi metur í raun einhvers það vinnuframlag sem innt er af hendi launalaust inni á heimilum landsins.

Ég vil að lokum benda á að þessi till. var áður flutt á síðasta löggjafarþingi og nú er hún endurflutt. Í umræðunni um till. þá lýsti hæstv. félmrh. stuðningi sínum við efni hennar og taldi hana réttlætismál. Samt fór það svo að till. fékkst ekki afgreidd úr hv. allshn. fyrir þinglausnir, en þá voru liðnir fimm mánuðir síðan till. hafði verið vísað til þeirrar nefndar. Nú vil ég því skora á hv. allshn., sem fær þessa till. væntanlega til meðferðar, að endurtaka ekki vinnubrögðin frá í fyrra. Og ég vil minna á í leiðinni að í millitíðinni höfum við hér á hæstv. Alþingi samþykkt alþjóðasamning, hvorki meira né minna, um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Sú till. sem ég hef hér mælt fyrir er eitt skref í þá átt og ætti því að eiga greiða leið hér á hæstv. Alþingi ef Alþingi metur einhvers samþykktir sínar.

Ég vil að lokum gera tillögu um að þessari þáltill. verði vísað til hv. allshn. að lokinni fyrri umræðu um hana.