25.02.1986
Sameinað þing: 51. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2750 í B-deild Alþingistíðinda. (2345)

255. mál, kostnaður af starfsemi Krabbameinsfélags Íslands

Heilbr.- og trmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Það er aðeins örstutt athugasemd um það hversu stór hundraðshluti af tekjum félagsins komi úr ríkissjóði. Mér reiknast til að það sé röskur þriðjungur því að tekjurnar úr ríkissjóði eru 12,5 millj. en heildartekjurnar eru 34,5.