28.02.1986
Neðri deild: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2936 í B-deild Alþingistíðinda. (2457)

303. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Frsm. meiri hl. (Friðrik Sophusson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. meiri hl. hv. fjh.- og viðskn. Nefndin hefur fjallað um málið, fyrst á sameiginlegum fundi beggja fjh.- og viðskn. í morgun og síðan aftur í hléi á milli funda.

Óþarfi er að kynna þetta mál hér. Það hefur þegar verið kynnt bæði þingi og þjóð. Meiri hl. mælir með að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru á því í Ed. Minni hlutar eru þrír og munu þeir skila séráliti og frsm. þeirra gera grein fyrir viðhorfum sem þar koma fram.