30.10.1985
Neðri deild: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í B-deild Alþingistíðinda. (253)

12. mál, almannatryggingar

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Deildin hefur fyrir 3 mínútum vísað öðru frv. um breyt. á lögum um almannatryggingalöggjöfina til heilbr.- og trn. Ég tel eðlilegt að þessi frumvörp fylgist að og fari bæði til sömu nefndar. Úr því að nefndin tók þá ákvörðun fyrir stundu legg ég til að sami háttur verði hafður á um þetta frv., að frv. fylgist að og fari bæði í heilbr.- og trn.