10.03.1986
Efri deild: 58. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3010 í B-deild Alþingistíðinda. (2533)

321. mál, tollskrá

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Eins og hv. þingdeildarmönnum er kunnugt er hér um að ræða frv. sem ætlunin er að koma í gegnum þessa hv. deild til Nd. og gegnum þingið í dag þannig að nú verður gert hlé á þessum fundi svo að fjh.- og viðskn. geti fjallað um málið. Ég held að það verði gerð tilraun til að hafa þetta hlé til kl. hálfþrjú til að byrja með. Fundinum er frestað til kl. hálfþrjú. - [Fundarhlé.]