12.03.1986
Sameinað þing: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3077 í B-deild Alþingistíðinda. (2651)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Svohljóðandi bréf hefur borist frá forseta Nd.:

„Alþingi, 12. mars 1986.

Formaður þingflokks Sjálfsttl. hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl., er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans ósk með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Siggeir Björnsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd."

Siggeir Björnsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann á ný velkominn til starfa.

Þá liggur hér fyrir annað bréf frá forseta Ed. „Alþingi, 12. mars 1986. Skúli Alexandersson, 4. þm. Vesturl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Alþb. í Vesturlandskjördæmi, Jóhanna Leópoldsdóttir útibússtjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed."

Jóhanna Leópoldsdóttir hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og hér fylgir kjörbréf hennar. Vil ég fara þess á leit að hv. kjörbréfanefnd taki kjörbréfið til athugunar. Á meðan verður fundinum frestað í fimm mínútur. - [Fundarhlé.]