12.03.1986
Sameinað þing: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3077 í B-deild Alþingistíðinda. (2654)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Með því að Jóhanna Leópoldsdóttir hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi mun hún núna undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
Drengskaparheit unnið.
Jóhanna Leópoldsdóttir, 4. þm. Vesturl., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson): Jóhanna Leópoldsdóttir hefur unnið drengskaparheit að stjórnarskránni og býð ég hana velkomna til starfa á Alþingi.