09.04.1986
Sameinað þing: 71. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3538 í B-deild Alþingistíðinda. (3195)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Svohljóðandi bréf hefur borist:

„Reykjavík, 9. apríl 1986. Formaður þingflokks Sjálfstfl. hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem Pétur Sigurðsson 12. þm. Reykv. er veikur og getur ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans ósk með tilvísun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis og þar sem 1. varamaður getur ekki tekið sæti og 2. og 3. varamenn sitja nú á Alþingi að óska þess að 4. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Geir H. Haarde aðstoðarmaður ráðherra, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti neðri deildar.“

Þessu bréfi fylgir kjörbréf sem þarf að athuga og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka bréfið til athugunar. Á meðan verður fundi frestað í 5 mínútur. - [Fundarhlé.]