14.04.1986
Efri deild: 74. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3743 í B-deild Alþingistíðinda. (3413)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Þessari umræðu er þá frestað. Þannig háttar nú til í störfum þingdeilda að nokkur skriður er kominn á málin og nú hafa borist til þessarar hv. deildar sjö mál frá Nd. Þar af eru fimm 1. umræðu mál og tvö mál sem eru endursend til einnar umræðu. Þá hafa verið afgreidd hér í deildinni í dag til 3. umr. fjögur mál sem þarf að koma til hv. Nd. Til að koma þessum málum áfram er nauðsynlegt að fresta þessari umræðu, eins og ég sagði áðan, og setja nýjan fund með nýrri dagskrá.

Umr. frestað.