22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4416 í B-deild Alþingistíðinda. (4170)

Skýrsla menntamálaráðherra um Lánasjóð íslenskra námsmanna

Forseti (Helgi Seljan):

Áður en umræðan heldur áfram er rétt að geta þess að það mun vera óformlegt samkomulag um að menn fari ekki mikið fram yfir 15 mínútur, talsmenn hvers flokks, í umræðum um þessa skýrslu og vænti ég þess að við því verði orðið því að hér er ekki um tímatakmörkun að ræða samkvæmt þingsköpum og því ekki slegið í bjölluna eða neinar slíkar aðvaranir gefnar þó að eitthvað fari úr böndum