23.04.1986
Efri deild: 88. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4513 í B-deild Alþingistíðinda. (4278)

423. mál, áfengislög

Landbrh. (Jón Helgason):

Hæstv. forseti. Ég skil tilgang hv. 5. landsk. þm. með þeirri brtt, sem hann flytur en ég held að það form sem er á henni geti vart staðist, þ.e. að sveitarstjórn skuli hnekkja úrskurði dómsmrh. Það þarf að hafa eitthvert annað form á því en það.