23.04.1986
Efri deild: 91. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4565 í B-deild Alþingistíðinda. (4373)
448. mál, málefni Arnarflugs hf.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Þessi umræða fer kannske svolítið á skjön og markast kannske af því að menn eru orðnir dálítið lúnir hérna þennan síðasta þingdag. En það sem hér hefur ótvírætt komið fram er að það eru í raun og veru engin veð fyrir þessari ábyrgð og að það sem hér er lagt til jafngildir í rauninni því að ríkissjóður gangi í sjálfskuldarábyrgð fyrir erlendum lánum.