13.12.1986
Sameinað þing: 31. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1681 í B-deild Alþingistíðinda. (1411)

1. mál, fjárlög 1987

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég hygg að ef fyrri liðurinn verður samþykktur sé eigi að síður nauðsynlegt að síðasta málsgr. komi til atkvæða sérstaklega, „Fjmrn. setur nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.“ Ég held að það sé nauðsynlegt að þessi setning haldist í frv. ef fyrri málsgr. er samþykkt þannig að ég held að óhjákvæmilegt sé að atkvæðagreiðslan sé í þrennu lagi til þess að öllu réttlæti sé fullnægt.