15.12.1986
Efri deild: 20. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1756 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)

87. mál, verkfall flugvirkja og flugvélstjóra hjá Arnarflugi hf.

Frsm. meiri hl. samgrn. (Egill Jónsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hl. samgn. Ed. Alþingis um frv. til laga um stöðvun verkfalls flugvirkja og flugvélstjóra í Flugvirkjafélagi Íslands sem starfa hjá Arnarflugi hf.

Ég minni á framsöguræðu samgrh. og þær skýringar á áliti meiri hl. sem þar komu fram sem að sjálfsögðu eru fullnægjandi. Mér finnst vert að taka fram að einn nefndarmanna sem undirritar nál. var fjarverandi. Hann var veðurtepptur. Hann hefur hins vegar tjáð sig samþykkan þessari afgreiðslu.