16.12.1986
Sameinað þing: 32. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (1614)

220. mál, sjálfvirkur sleppibúnaður björgunarbáta

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég mótmæli því að Siglingamálastofnun sé hlutdræg stofnun í þessu sambandi. Þetta er opinber stofnun sem er algjörlega hlutlaus í þessu sambandi.