20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2228 í B-deild Alþingistíðinda. (2115)

1. mál, fjárlög 1987

Steingrímur J. Sigfússon:

Virðulegur forseti. Frá því að brtt. sú, sem nú er á þskj. 423,II, var fyrst flutt við 2. umr. og síðan 3. umr. hafa þau tíðindi gerst að hv. fjvn. hefur flutt aðra brtt. efnislega samhljóða með sömu upphæð til að undirbúa og hefja háskólakennslu á Akureyri. Á uppsetningunni er hins vegar nokkur munur. Ég kalla því brtt. mína til baka og styð brtt. frá hv. fjvn. sem er efnislega samhljóða.