20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2231 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)

1. mál, fjárlög 1987

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Með skírskotun til þess fólks sem líður fyrir fíkniefnavandann hér, bæði einstaklinga og aðstandenda, því miður ekki aðeins hundruðum heldur þúsundum saman, ekki með skírskotun til þess fyrst og fremst að með þessum aðgerðum sé verið að spara heldur með skírskotun til mannlegra tilfinninga og mannlegrar reisnar, sem Alþingi á að reyna að stuðla að með ákvörðunum sínum, með skírskotun til þess, herra forseti, og einskis annars segi ég já.