20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2234 í B-deild Alþingistíðinda. (2146)

1. mál, fjárlög 1987

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Það liggja fyrir yfirlýsingar um að flugmálaáætlun verði lögð fram á þessu þingi. Þar mun verða fjallað um tekjustofna til þeirra verkefna sem áætlunin tekur til. Samgrh. hefur lýst því yfir að uppbygging Egilsstaðaflugvallar verði forgangsverkefni og tillögur flugmálanefndar gera ráð fyrir því. Ég tel að uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar eigi að leysa í samhengi við uppbyggingu í flugmálum í landinu og tel þá till. sem hér um ræðir ekki vera málinu til framdráttar. Því segi ég nei.