19.01.1987
Neðri deild: 35. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2314 í B-deild Alþingistíðinda. (2229)

Kristín H. Tryggvadóttir fyrir KJóh 3 RN A

Forseti (Ingvar Gíslason):

Borist hefur bréf til forseta Nd. frá Kjartani Jóhannssyni 3. þm. Reykn. þar sem hann tilkynnir að hann sé á förum til útlanda í opinberum erindum og geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Hann leyfir sér að óska þess að sæti sitt taki 1. varamaður Alþfi. í Reykjaneskjördæmi, Kristín H. Tryggvadóttir, og mun hún vera komin til þings. Ég býð Kristínu velkomna til þingstarfa.