16.03.1987
Efri deild: 67. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4332 í B-deild Alþingistíðinda. (4095)

418. mál, dráttarvextir

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Þetta frv. um dráttarvexti er flutt af nefnd í Nd., en það er fylgifrv. með frv. til vaxtalaga, eins og fram kemur í frv. til vaxtalaga, og það þarf ekki frekari skýringa við. Ég sé ekki ástæðu til að það fari frekar til nefndar í þessari deild en í Nd. af því að frv. er flutt af nefnd og í raun og veru er fjallað um þetta frv. í sambandi við frv. til vaxtalaga.