19.03.1987
Sameinað þing: 67. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4583 í B-deild Alþingistíðinda. (4494)

Þinglausnir

Ragnar Arnalds:

Ég vil af hálfu okkar alþingismanna þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur til handa. Ég vil einnig þakka honum fyrir skínandi góða og örugga forustu um þingstörfin á þessu kjörtímabili sem nú er á enda, og ég óska honum og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni. Ég nota einnig þetta tækifæri til að þakka skrifstofustjóra Alþingis og starfsliði Alþingis öllu fyrir mjög góð störf. Ég bið hv. alþm. að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. - [Þingmenn risu úr sætum.]