11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (595)

45. mál, umsóknir um húsnæðislán

Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Í sambandi við fsp. hv. 3. þm. Reykv. er ljóst að ég hef ekki í höndum neitt svar við þessari spurningu hans. Ég geri ráð fyrir því að menn verði að treysta því að það verði reynt að framfylgja þeim lögum sem við höfum sett um húsnæðismálin og það verður fljótlega hægt að greina frá því hér á hv. Alþingi. Komi fram sérstök fsp. um að flýta því svari mun ég að sjálfsögðu verða við því.