04.12.1987
Efri deild: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1084)

Fundarboð og fjarvera þingmanna

Forseti (Karl Steinar Guðnason):

Ég tek fram að það er vilji minn að deildarfundir verði haldnir á mánudag og ég vænti þess að það náist samkomulag um að svo verði gert. Það þarf að koma fram málum fyrir jól og ég hygg að það sé öllum til góðs í þingstörfum að síðustu dagana til jóla verði unnið af miklum þunga. Það eru svo fáir dagar eftir.