19.10.1987
Efri deild: 4. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í B-deild Alþingistíðinda. (111)

Öll mál tekin út af dagskrá

Forseti (Karl Steinar Guðnason):

Hv. deildarmenn. Þar sem þetta er fyrsti fundur í deildinni sem ég sit síðan ég var kjörinn forseti þessarar hv. deildar vil ég nota tækifærið og þakka það traust sem mér hefur verið sýnt með kjöri mínu. Ég óska eftir góðu samstarfi og samvinnu við hv. deildarmenn og mun gera mitt til þess að svo geti orðið.

Forseti tók eina dagskrármálið af dagskrá.