18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2507 í B-deild Alþingistíðinda. (1848)

197. mál, vörugjald

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Meiri hl. fjh.- og viðskn. eða þeir einstaklingar sem eiga sæti í honum flytja smábrtt. sem er leiðrétting. Af misgáningi höfðu fallið niður nokkur tollnúmer í sambandi við vörugjaldið sem varða steinull og glerull. Þarna var um pennaglöp að ræða og við flytjum brtt. um að taka það mál upp.