18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2525 í B-deild Alþingistíðinda. (1887)

196. mál, söluskattur

Forseti (Karl Steinar Guðnason):

Af þessu tilefni vil ég taka fram að það er rangt að þskj. hafi verið morandi af villum. Hitt er annað að ég hafði ætlað mér að leiðrétta þessa villu, sem er í brtt. til lánsfjárlaga, og það hefði vissulega verið gert ef það hefði verið tekið fyrir. En ég geri það nú þegar, vek athygli á að þskj . 341 er merkt 47. mál en á að vera 63. mál.