18.12.1987
Efri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2528 í B-deild Alþingistíðinda. (1901)

197. mál, vörugjald

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Út af síðustu orðum hv. þm. held ég að um nokkurn misskilning sé að ræða. Svo lengi sem ég hef fylgst með stjórnmálum hefur það ævinlega verið svo um tekjuáætlun þess fjárlagafrv. sem verið hefur til afgreiðslu í þinginu hverju sinni að tekjuáætlunin hefur jafnan verið nákvæmari og betri en nokkru sinni fyrr og ég efast ekki um að svo sé nú sem ávallt áður.