18.12.1987
Efri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2528 í B-deild Alþingistíðinda. (1902)

197. mál, vörugjald

Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég get út af fyrir sig fellt mig við það eins og fram kom fyrr í dag að þetta mál haldi hér áfram og þessi tekjuáætlun liggi þá fyrir við afgreiðslu söluskattsmálsins, sem er síðar á dagskránni þannig að ég ætla ekki að leggja fleiri orð í þann belg að sinni sem tilheyrir þessu máli sem er frv. til l. um vörugjald.