22.12.1987
Neðri deild: 37. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3159 í B-deild Alþingistíðinda. (2228)

Jólakveðjur í neðri deild

Forseti (Jón Kristjánsson):

Ég þakka hv. 5. þm. Reykv. fyrir vinsamlegar óskir í minn garð og fjölskyldu minnar og ég endurtek þakkir mínar og heillaóskir til þingdeildarmanna og starfsfólksins og ég endurtek að ég vona að við hittumst hér heil þegar þing kemur til starfa aftur nú að lokinni jólahelginni.