30.12.1987
Neðri deild: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3475 í B-deild Alþingistíðinda. (2449)

Fréttir af þinghaldi

Forseti (Jón Kristjánsson):

Á þessum fundi erum við að leitast við að koma þremur málum áfram í umræðum í þessari hv. deild sem eðli máls samkvæmt þurfa að fylgjast að þar sem þetta allt saman tilheyrir tekjuhlið fjárlaga eins og hefur oft komið fram við þessa umræðu. Það hefur ekki staðið til að forsetar gengju nokkuð á rétt stjórnarandstöðunnar í umræðum. Það mun koma í ljós hvernig þessari umræðu vindur fram og auðvitað munum við forsetar fylgjast grannt með því og taka okkar ákvarðanir í samræmi við það.