14.01.1988
Sameinað þing: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4048 í B-deild Alþingistíðinda. (2827)

170. mál, veiting atvinnurekstrarleyfa til erlendra ferðaskrifstofa

Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir):

Herra forseti. Ég vildi aðeins gera örstutta athugasemd og þakka hæstv. ráðherra fyrir að vilja taka þetta mál svo föstum tökum og vona að það gildi líka um félmrh. Ég vænti þess að þessi endurskoðun verði gerð mjög fljótt þannig að þetta verði tilbúið fyrir ferðamannavertíðina næsta sumar.