01.03.1988
Efri deild: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5127 í B-deild Alþingistíðinda. (3471)

278. mál, sálfræðingar

Frsm. menntmn. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. til laga um sálfræðinga, en frv. þetta felur í sér réttarvernd fyrir þetta starfsheiti og er það í framhaldi af samkomulagi sem sálfræðingar og ríkisvaldið gerðu á sínum tíma í tengslum við kjarasamninga. Fyrir liggur nál. á þskj. 609 frá menntmn. þessarar hv. deildar sem leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.