20.04.1988
Neðri deild: 79. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6677 í B-deild Alþingistíðinda. (4634)

271. mál, framhaldsskólar

Forseti (Jón Kristjánsson):

Ég bendi á að brtt. á þskj. 864 fjallar um að allur kafli frv. breytist og allar greinar frv. sem varða þennan kafla. Þessi till. gengur lengst og ef þessi brtt. er samþykkt eru þær greinar ákveðnar. Ég hef gengið úr skugga um að þessi afgreiðsla stenst gagnvart þingsköpum, en verði farið að búta þennan kafla niður er mjög óhægt um atkvæðagreiðslu. (Gripið fram í.) Ég mun úrskurða að kaflinn verði borinn upp sem ein heild og mun þá hefja nafnakall, eins og hefur verið beðið um, um kaflann.