11.05.1988
Efri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7971 í B-deild Alþingistíðinda. (6178)

Starfslok efri deildar

Forseti (Karl Steinar Guðnason):

Þar sem þetta er síðasti fundur deildarinnar á 110. löggjafarþingi vil ég færa hv. þingdeildarmönnum þakkir fyrir mjög svo ánægjulegt og gott samstarf. Sérstök ástæða er fyrir mig til að þakka mikið umburðarlyndi og þolinmæði í minn garð sem forseta. Skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki færi ég bestu þakkir fyrir þeirra annasömu störf í þágu okkar þingdeildarmanna og Alþingis.

Ég óska ykkur öllum og fjölskyldum ykkar alls hins besta á sumrinu og vænti þess að við hittumst að hausti þegar Alþingi kemur saman á ný. Þeim sem eiga um langan veg að fara óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu.