31.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í B-deild Alþingistíðinda. (1189)

2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909

Jón Ólafsson:

Eg vil að eins geta þess um breyt.till. á þskj. 365 vegna þeirra, sem ekki þekkja til, að spjaldskrín (Card cabinet) er skápur með skúffum undir spjaldskrár þær, er nú hefir verið unnið að um nokkur ár í landsbókasafninu. Það er áhald til þess að gera almenningi aðgengilega skrá yfir safnið.