05.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 889 í B-deild Alþingistíðinda. (1388)

9. mál, ellistyrkur

Framsögumaður (Jón Magnússon):

Eg ætla ekki að fara mörgum orðum um þetta frv. að sinni, en mun gera það, ef tilefni gefst til þess síðar.

Mál þetta er kunnugt; það hefir áður verið til meðferðar hér á þingi og hefir nú verið athugað af Ed. Eg læt mér því að svo stöddu nægja, að leggja til fyrir hönd nefndarinnar, að málið verði látið ganga til 2. umr.