17.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)

80. mál, skólabækur

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Mér lízt vel á þessa tillögu, og eg ætla að hún verði til góðs. Samkvæmt þeim umræðum, er farið hafa fram í efri deild um málið, get eg hugsað mér að

ef til vill væri hægt að breyta eitthvað til bóta því fyrirkomulagi, sem hér er gert ráð fyrir, svo að það yrði heppilegra en það er. Og sting eg því upp á 3 manna nefnd í málið.