11.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1986 í B-deild Alþingistíðinda. (2452)

139. mál, áætlanir og mælingar verkfræðings

Hálfdan Guðjónsson:

Það sem mér skildist háttv. 2. þingm. Húnv. (B. S.) segja, var það, að það var sýslufundurinn, en ekki alþingi, sem óskaði eftir, að ransakað yrði svifferjustæði á Blöndu.

Annars vil eg leyfa mér að gera það að minni tillögu, að þessum málum sé vísað til samgöngumálanefndarinnar.