23.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (522)

36. mál, sala á Kjarna

Steingrímur Jónsson:

Eg vildi að eins mótmæla þeim orðum háttv. 6. kgk. þm., að ekki hefðu verið færð rök að því, að 12000 kr. væri ekki of hátt verð á Kjarna. Eg færði einmitt rök að því, er málið var til umræðu hér í deildinni á dögunum, og það var líka gert í háttv. neðri deild, og bar þann árangur, að verðið einmitt var fært upp í 12000 kr.