26.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

2. mál, fjáraukalög 1908 og 1909

Ari Jónsson:

Eg vildi að eins gera stutta athugasemd viðv. orðum háttv. 3. kgk. þm. Hann hélt að ætti að rannsaka 4 leiðir inn til hafnarinnar, en á auðvitað að vera að eins ein. En eins og eg gat um í ræðu áður, þarf mikilla rannsókna víða um Breiðafjörð vegna gufubátsferðanna um fjörðinn.