25.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í B-deild Alþingistíðinda. (1603)

70. mál, forgangsréttur kandídata

Framsögum. (Bjarni Jónsson):

Frumv. þessu var tekið vel við síðustu umræðu, og er óþarft að orðlengja um það nú. Nefndin hefir sama sem engar breytingar gert á því, að eins orðabreytingar til skýringarauka á stöku stað. Eg vil því leggja til, að samþykt verði, að það gangi til 3. umr.