13.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)

73. mál, almanök

Ráðherrann (H. H.):

Eg álít það mjög vafasamt, að við getum tekið af Hafnarháskóla löglega fengin peningaréttindi, það þarf að minsta kosti að athuga málið vel áður. Eg hygg, að hv. þm. N.-Þing. (B. Sv.) bresti algerlega þekkingu til þess að víta hvernig einkaleyfi þetta er til komið. Þess vegna eru það tilmæli mín, að málið verði ekki afgreitt á þessu þingi.