26.08.1912
Efri deild: 37. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í B-deild Alþingistíðinda. (275)

104. mál, einkasöluheimild á steinolíu

Ráðherra (H. H.):

Út af ummælum háttv. þm. V.-Sk. vil jeg taka það fram, að jeg ber ekki annan kvíðboga út af þessu frv. en þann eina, að frv., eins og það liggur fyrir, yrði með öllu gagnlaust og óframkvæmanlegt, og því eingöngu til vonbrigða fyrir þá, er halda, að það komi að einhverjum notum.