04.07.1913
Efri deild: 3. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)

27. mál, vatnsveitingar

Jón Jónatansson:

Þetta frumv. mun vera komið fram eftir ítrekaðri beiðni frá Búnaðarfjélagi Íslands, því menn hafa mjög fundið til þess, að ákvæði vantaði um þessi efni, en á þessu stigi málsins þýðir ekki að fara langt út í þetta mál. Jeg vænti þess, að þetta mál fái að ganga áfram til 2. umræðu, og vil leggja til, að því sje vísað til fimm manna nefndar, að þessari umræðu lokinni, því málið er umfangsmikið.