01.08.1913
Efri deild: 21. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í B-deild Alþingistíðinda. (1795)
128. mál, friðun fugla og eggja
Júlíus Havsteen:
Jeg vil aðeins leyfa mjer að spyrja, hvers vegna nefndin hefur slept að friða rjúpnaegg. Þau virðast þó eiga að hafa jafn mikinn rjett á sjer, sem önnur egg, er menn vilja friða.