29.07.1913
Neðri deild: 21. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í C-deild Alþingistíðinda. (386)

27. mál, vatnsveitingar

Bjarni Jónsson:

Eg vil gera það að tillögu minni, að þessu máli sé vísað til landbúnaðarnefndarinnar. Fyrst til þess hefir verið kosin sérstök nefnd, þykir mér það vera að gera nefndarmennina að fíflum, er kosnar eru sérstakar nefndir í mál, sem beint heyra undir þá nefnd.