01.08.1913
Neðri deild: 24. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í C-deild Alþingistíðinda. (476)

80. mál, gjafasjóður Jóns Sigurðssonar

Flutningsm. (Stefán Stefánsson):

Viðvíkjandi því sem hv. síðasti ræðum. (J. Ól.) Sagði, skal eg geta þess, að eg hefi áður orðið var við slíkt álit. Og vegna þess var það, að eg fekk málið tekið út af dagskrá fyrir fáum dögum. En vegna álits hæstv. ráðherra hefi eg óskað að það væri tekið á dagskrá aftur. Eg læt þingið um að skera úr, hvor þeirra hefir réttara fyrir sér, hv. ráðherra eða hv. þm. S.-Múl. (J. Ól.).