07.08.1913
Neðri deild: 28. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í C-deild Alþingistíðinda. (647)

42. mál, stofnun landhelgissjóðs Íslands

Halldór Steinsson:

Eg álít nú fyrir mitt leyti að það sé rétt, að hér eigi að standa: löggjafarvaldið. En úr því að ágreiningur hefir risið um þetta, og af því að þetta er 2. umr. og á því að ræða sérstakar greinar, þá álit eg rétt að taka málið út af dagskrá og fresta umræðunni.

Eg leyfi mér því að fara fram á, að málið verði tekið út af dagskrá.